info@highlandguide.is +354 863 0300 / +354 863 2326

Jeppa- göngu- og matarupplifunarferð út frá Hrífunesi

Sumarið 2024 bjóða ferðaþjónustubændurnir Hadda Björk Gísladóttir og Haukur Snorrason Íslendingum upp á jeppa- og gönguferðir um eitt fjölbreyttasta svæði Íslands, Eldsveitirnar.

Gist verður í Cabin 9 sem er afar fallegt hús staðsett í Hrífunes Nature Park. Húsið tekur 8 - 9 í gistingu í 4 herbergjum. Í húsinu eru tvö baðherbergi og gufubað (sauna). 

ATH lágmarksfjöldi í ferðirnar eru 8 manns. 

Um er að ræða þriggja daga ferðir fyrir litla hópa á breyttum fjallabíl. Ferðirnar leiðir Haukur Snorrason ljósmyndari og leiðsögumaður. 
Í ferðinni verður m.a. farið yfir eldfjallasögu svæðisins og ýmsir leynistaðir heimsóttir sem eru mörgum Íslendingum ókunnir. Hér að neðan er ferðalýsing. 

Eftirfarandi dagsetningar eru lausar 2024

10. - 13. Júlí  laust.
18. - 21. júlí - Uppselt. 
21. - 23. júlí - 2 sæti laus. 
16. - 19. ágúst - Uppselt.
 

Við getum einnig sett upp ferðir á öðrum dagsetningum fyrir einkahópa og farið fleiri daga á aðra staði sé þess óskað. 

Dagskrá

Komudagur.

Fólk kemur sér á eigin vegum í Hrífunes Nature Park í Skaftártungu og mætir á milli kl. 16-19. Sameiginlegur kvöldverður er snæddur kl. 19:30 og mun Haukur Snorrason hitta hópinn og fara yfir dagskrá komandi daga.
Gisting: Hlýlegt og nýlegt 4 herbergja hús sem kallast Cabin 9 og er staðsett í Hrífunesi. Í húsinu eru tvö baðherbergi.
Máltíðir: Kvöldverður,  sem er eldaður af Höddu Björk öll kvöldin. 

 

Dagur 1 - Fjallabak nyrðra
Hrífunes – Langisjór – Sveinstindur – Eldgjá – Hrífunes


Eftir staðgóðan morgunmat leggjum við af stað inn á Fjallabak nyrðra, ökum meðfram Skaftá og hrauninu sem rann úr Lakagígum 1783. Við teygjum úr okkur við Hólaskjól og tökum stutta göngu inn að Gullfossi. Þaðan ökum við inn að Langasjó sem er eitt afskekktasta vatn Íslands. Við göngum upp á Sveinstind en gangan á topp fjallsins er fær öllum meðal göngumönnum. Útsýnið af Sveinstindi er stórkostlegt þar sem sést yfir Langasjó, Skaftá og Vatnajökul. Við höldum til baka aðra leið í gegnum Blautulón, Skælinga og ökum svo upp á  barm Eldgjár þaðan sem við fáum útsýni yfir Ófærufoss. Hér lýkur deginum og við ökum sem leið liggur niður í Hrífunes þar sem girnileg kvöldmáltíð bíður okkar. Við kveikjum varðeld eftir kvöldmatinn á landinu okkar niður við ánna þetta kvöld (eða þegar best viðrar.)

Gisting: Cabin 9, Hrífunesi
Máltíðir: Morgunmatur, hádegisnesti og kvöldverður

 

Dagur 2 - Fjallabak syðra
Hrífunes – Hólmsárfossar - Mælifellssandur – Strútslaug - Axlarfoss


Eftir morgunmat ökum við inn á Fjallabak syðra. Við förum lítt þekkta leið fram hjá Öldufelli, bak við Mýrdalsjökul og virðum fyrir okkur fallega fossa s.s. Hólmsárfossa. Eitt fallegasta fjall Íslands, Mælifell, verður á leið okkar þar sem það trónir á miðjum svörtum Mælifellssandinum íklætt grænum mosa. Frá Mælifelli ökum við sem leið liggur inn að fjallinu Strúti, þaðan sem við göngum að Strútslaug og skellum okkur í villibað í miðjum fjallasal. Gangan er hófleg klukkustundarganga hvora leið. Ath – taka þarf með sundföt og handklæði og enga búningsklefa er þarna að finna.
Við endum daginn á því að aka aðra leið niður af Fjallabaki, yfir Hólmsá og skoðum Axlarfoss  áður en við höldum heim í Hrífunes og njótum annarrar "a la" Hrífunes máltíðar.
Gisting: Cabin 9, Hrífunesi
Máltíðir: Morgunmatur, hádegisnesti og kvöldverður

 

Dagur 3 - Fjall, foss og fjara
Hrífunes – leynifoss – Eldhraun - Skaftárósar


Við leggjum í'ann inn á Öldufellsleið sem er rétt við bæjardyrnar hjá okkur og keyrum innundir sunnanverðan Mýrdalsjökul og göngum inn með Sandfellsjökli að einum af fallegri fossum á Íslandi. Foss þessi er, að ótöldum örfáum smalamönnum, nánast öllum Íslendingum ókunnur. Gönguleiðin er í meðallagi erfið. Eftir förina að leynifossinum höldum við til baka í Hrífunes og snæðum nestið okkar.
Eftir hádegi ökum við að suðurströndinni, í gegnum Eldhraunið og er förinni heitið að hinum forna verslunarstað að Skaftárósi á Klausturfjöru. Þar skoðum við gamalt verslunarhús, vita og fræðumst um sögu staðarins. Eftir heimsóknina í Skaftárósa er haldið til baka í Hrífunes og er þar með formlegri ferðadagskrá lokið.
Máltíðir: Morgunmatur og hádegisnesti.

Hámarksfjöldi farþega í ferðina er 9 manns.

Innifalið í verðinu er þriggja daga ferð á breyttum fjallajeppa með leiðsögn, gisting í  þrjár nætur í Hrífunes Nature Park, sem og allar máltíðir (morgunmatur, hádegisnesti og kvöldverður).

Verð er 149.800 kr. á mann. Gist er í 2-3 manna herbergjum.
Aldurstakmark í ferðina er 14 ára.

Við áskiljum okkur rétt til að breyta dagskránni í takt við veðurspár.

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir til hadda@looknorth.is